Æfingarimlar 230x80cm

39.995 kr.

  • Flottir og einfaldir rimlar
  • Rimlar úr beyki, hliðar úr greni
  • Hægt að nota í ýmsar æfingar/teygjur
  • 11 rimlar
  • Stærð (HxLxB): 230 x 12 x 80cm
  • Hámarksþyngd notanda er 200kg
  • Framleiddir í Evrópu
  • Samsetningarleiðbeiningar á íslensku eru hér fyrir neðan

Á lager

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Rimlar hafa verið grunnbúnaður í íþróttahúsum síðustu áratugi enda er hægt að gera á þeim ýmsar æfingar og teygjur. Rimlarnir koma ósamsettir.

Samsetningarleiðbeiningar:

  1. Takið alla parta úr pakkningum og leggið aðra hliðina á gólf/vinnuborð
  2. Setjið límdropa í hverja holu (lím fylgir með)
  3. Berjið rimla í holurnar með gúmmíhamri
  4. Takið hina hliðina og leggið á gólf/vinnuborð
  5. Setjið límdropa í hverja holu og dreifið úr svo að límið leki ekki í næsta skrefi
  6. Setjið hliðina sem þið voruð að bera lím í ofan á rimlana og berjið svo með gúmmíhamri til að ná rimlunum inn. Ath. að hér er æskilegt að nota viðarbút/þykkan pappabút á milli til þess að koma í veg fyrir að hamarinn skilji eftir sig för. Hér er einnig gott að hafa félaga sem að beinir rimlunum.
  7. Þegar báðar hliðar eru komnar á skal mæla breiddina – breiddin á að vera um 80cm (getur munað nokkrum mm), ef breiddin er talsvert meiri þá þarf að berja rimlana betur saman.
  8. Á báðum hliðum eru 3 forboruð göt sem setja þarf skrúfur í
  9. Skrúfa á vinkla og festa rimlana á vegg

Lykilpunktar:

  • Viður: Rimlar úr beyki, hliðar úr greni
  • Fjöldi rimla: 11
  • Þykkt rimla: 35mm
  • Hámarksþyngd notanda: 200kg
  • Stærð (HxLxB): 230 x 12 x 80cm
  • Framleiddir í Evrópu