Hreysti
Hreysti
Hreysti
568-1717
[email protected]

Verslun

Skeifan 19, 108 Reykjavík

Vöruhús

Sundagarðar 6, 104 Reykjavík

Opnunartími

  • Virka daga: 10–18
  • Laugardaga: 11–15
  • Sunnudaga: Lokað

Vöruhús

  • Virka daga: 9–12 og 13–17

Upplýsingar

  • Skilmálar
  • Greiðsluleiðir

Þjónusta

  • Hafa samband
  • Afhendingarmátar
  • Verkstæði
  • Samsetningarþjónusta

Hreysti

  • Um okkur
  • Hreysti línan
  • Okkar verkefni

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.

© 2026 Hreysti ehf

VisaMastercardAmerican ExpressMaestro
ForsíðaLyftingarekkarTaurus Power lyftingarekki
Uppselt

Taurus Power lyftingarekki

Taurus
  • Sterkbyggður lyftingarekki fyrir fjölbreyttar styrktaræfingar

  • Hentar vel fyrir hnébeygju, bekkpressu, axlapressu og fleiri stangaræfingar

  • Stangarhaldarar þola allt að 300kg

  • 19 hæðarstillingar frá 55–190cm

  • Langir öryggisarmar gera æfingar öruggari

  • Innbyggð upphífistöng sem þolir allt að 150kg

  • Geymsla fyrir bæði 30mm og 50mm lóðaplötur

  • Festingar fyrir teygjur og TRX bönd

  • Geymsla fyrir 50mm ólympíska lyftingastöng

  • Stærð: 120 x 117 x 225cm

84.999 kr.

Uppselt

Láttu mig vita þegar varan kemur aftur

Sláðu inn netfang og við sendum þér póst um leið og varan kemur aftur á lager.

Taurus Power Rack er sterkbyggður og fjölhæfur lyftingarekki sem hentar einstaklega vel fyrir heimaræktina. Rekkinn gefur þér örugga aðstöðu fyrir helstu æfingar með lyftingastöng og með góðum stillanlegum bekk er hægt að byggja upp mjög fjölbreytta æfingaaðstöðu í kringum hann.

Stangarhaldararnir eru stillanlegir í 19 hæðir frá 55 upp í 190cm. Þannig er auðvelt að stilla rekkann fyrir hnébeygju, bekkpressu, axlapressu og fjölmargar aðrar æfingar. Stangarhaldararnir þola allt að 300kg álag.

Með rekkanum fylgja einnig langir öryggisarmar sem hægt er að færa eftir æfingu og notanda. Þeir grípa stöngina ef þú nærð ekki að klára lyftuna og eru því sérstaklega mikilvægir fyrir þá sem æfa einir. Lægsta stillingin er um 55cm frá gólfi og því er einnig hægt að nota armana til að byrja æfingar með stöngina ofar frá gólfi.

Innbyggð upphífistöng gefur þér möguleika á að bæta við upphífingum og öðrum æfingum fyrir bak og efri líkama. Upphífistöngin þolir allt að 150kg.

Taurus Power Rack kemur með óvenju miklum aukabúnaði. Á rekkanum eru geymslupinnar fyrir bæði 30mm og 50mm lóðaplötur ásamt geymslu fyrir 50mm ólympíska lyftingastöng. Á neðri hluta grindarinnar eru einnig festingar fyrir æfingateygjur og efst er festing fyrir TRX band.

Tveir stillanlegir pinnar fylgja með sem hægt er að nota fyrir lóðaplötur, teygjur eða aðrar æfingar. Þetta gerir rekkann enn fjölhæfari og gefur möguleika á að bæta mótstöðu við hefðbundnar stangaræfingar með teygjum.

Rekkinn er 225cm á hæð og hentar með 200 og 220cm lyftingastöngum. Grunnurinn er breiður og stöðugur og rekkinn stendur vel án þess að festa þurfi hann niður. Festingar fyrir gólf fylgja þó með fyrir þá sem vilja festa rekkann varanlega.

Taurus Power Rack er góður kostur fyrir þá sem vilja sterkbyggðan og vel búinn rekka fyrir heimaræktina án þess að fara upp í stærri og mun dýrari commercial rekka.

Helstu mál o.fl.

Stærð (L x B x H): 120 x 117 x 225cm

Heildarbreidd með lóðageymslu: 165cm

Innri breidd fyrir stöng: 107cm

Hæðarstillingar á stangarhöldurum: 19

Hæð stangarhaldara: 55–190cm

Bil á milli stillinga: um 7,5cm

Hámarksálag á stangarhaldara: 300kg

Hámarksþyngd á upphífistöng: 150kg

Hentar með: 200 og 220cm lyftingastöngum

Lóðageymsla: Fyrir 30mm og 50mm lóðaplötur

Stangargeymsla: Fyrir 50mm ólympíska lyftingastöng

Festingar: Fyrir æfingateygjur og TRX band

Vinsælar viðbætur

Hreysti SB2 Lyftingabekkur
49.999 kr.

Tengdar vörur

Veggfestur RX3 1.png

Getrxd RX3 Tornado veggfestur lyftingarekki

  • 2x 90kg bunkar
  • |Festist á vegg
599.999 kr.
RX3 smith 1.jpg

Getrxd RX3 Tornado Smith lyftingarekki

  • All in one rekki
  • |2x 90kg bunki
699.999 kr.
Taurus MS20 Multi Functional Smith

Taurus MS20 Multi Functional Smith

  • 6 Æfingatæki í einu
  • |Án lóðabunka
449.999 kr.
Uppselt
NOHrD Lyftingarekki

NOHrD Lyftingarekki

  • Mismunandi viðartegundir
Frá449.999 kr.
Primal Performance 4-Station Multi-Stack Gym

Primal Performance 4-Station Multi-Stack Gym

  • Sérpöntun
  • |Með lóðabunkum
0 kr.
-20%
Taurus FCM æfingastöð – Rýmingarsala

Taurus FCM æfingastöð – Rýmingarsala

  • Þyngd með lóðaplötum
189.999 kr.151.999 kr.
Forpöntun
IPF bench 1.jpg

Primal Competition Combo Rack

  • Bekkur/Hnébeygjustandur
479.999 kr.
Hreysti X2 lyftingastandar

Hreysti X2 lyftingastandar

  • Tvískiptur lyftingastandur
37.999 kr.
Hreysti Trölla Veggfestur Lyftingarekki

Hreysti Trölla Veggfestur Lyftingarekki

  • Veggfestur lyftingarekki
74.999 kr.
Hreysti Bola Lyftingabúr

Hreysti Bola Lyftingabúr

  • Lyftingabúr
  • |Bola línan
79.999 kr.