Hreysti
Hreysti
Hreysti
568-1717
[email protected]

Verslun

Skeifan 19, 108 Reykjavík

Vöruhús

Sundagarðar 6, 104 Reykjavík

Opnunartími

  • Virka daga: 10–18
  • Laugardaga: 11–15
  • Sunnudaga: Lokað

Vöruhús

  • Virka daga: 9–12 og 13–17

Upplýsingar

  • Skilmálar
  • Greiðsluleiðir

Þjónusta

  • Hafa samband
  • Afhendingarmátar
  • Verkstæði
  • Samsetningarþjónusta

Hreysti

  • Um okkur
  • Hreysti línan
  • Okkar verkefni

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.

© 2026 Hreysti ehf

VisaMastercardAmerican ExpressMaestro
ForsíðaSpinning hjólLife Fitness IC5 spinning hjól

Life Fitness IC5 spinning hjól

Life Fitness
  • Professional spinning hjól
  • Nákvæmur WattRate wattamælir sem þarfnast ekki reglulegs viðhalds
  • Stillingar upp/niður & fram/aftur á bæði hnakk og stýri
  • Coach by color hugbúnaður
  • Hægt að hanna æfingar út frá wöttum eða púls
  • Tengimöguleikar við snjalltæki með Bluetooth og ANT+
  • Poly-v belti þarfnast minna viðhalds en keðja
  • Hjólið virkar frábærlega í samvinnu við ICG appið
  • Mælaborð gengur fyrir rafhlöðum
  • Hljóðlát segulmótstaða
  • 155mm Q-factor
  • Hámarksþyngd notanda: 150kg
  • Smelltu hér til þess að skoða bækling
399.999 kr.
1

Life Fitness IC5 spinning hjólin eru sérlega vönduð hjól sem að henta vel til notkunar í jafnt heimahúsi sem og æfingastöð. Hjólið sameinar fallega hönnun, hágæða íhluti og hugbúnað til þess að skapa sem bestu upplifun fyrir notandann. Með IC5 spinning hjólinu getur þú tekið öfluga æfingu líkt og í æfingastöð án þess að fara út úr húsi.

Hjólið er afar þægilegt í notkun en bæði hnakk og stýri er hægt að stilla bæði fram og aftur. Það að koma sér í réttu stellinguna á hjólinu skiptir gríðarlega miklu máli eins og allir sem eitthvað hafa stundað hjólreiðar vita. Stýrið á hjólinu er gripgott og húðað með mjúkri húð sem að minnkar álag á hendur. Stýrið er hannað þannig að hægt sé að vera í nokkrum mismunandi stellingum án þess að þurfa að breyta um stillingar á stýrispóstinum.

WattRate tölvan sem fylgir með hjólinu sýnir þér allar helstu upplýsingar ásamt því að hvetja þig áfram. Tölvan er tengd við nákvæman wattamæli sem er í hjólinu sjálfu en einnig er hægt að tengja hana með bluetooth eða ANT+ við snjalltæki og/eða púlsmæli. Coach by color æfingakerfið er það sem að hvetur þig svo áfram en með því getur þú skipulagt æfingu út frá wattasvæðum eða púlssvæðum. ICG appið virkar afar vel með Coach by color en þar finnur þú fyrirfram skipulagðar æfingar sem þú getur tekið fyrir.

IC5 hjólið byggir á segulmótstöðu sem að er svo gott sem viðhaldsfrír búnaður sem lítið heyrist í. Notað er sérstakt Poly-V belti sem að er gríðarlega sterkt og þarfnast ekki reglulegs viðhalds eins og t.d. Keðja. Stjórnað er mótstöðunni með 360° hnúði sem far frá minnstu mótstöðu í mestu mótstöðuna í einum hring. Sérstök hlíf umlykur búnaðinn í hjólinu til þess að vernda hann frá svita og ryki.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstöðustilling: Mótstöðuhnúður á stýrispósti

  • Rafmagnstenging: Gengur fyrir rafhlöðum

  • Tölva: Já, Wattrate tölva með bluetooth og ANT+ tengimöguleikum

  • Tölva sýnir: tíma, vegalengd, hraða, wött, cadence, kaloríur og getur sýnt púls (þarf strappa)

  • Vistun upplýsinga: Já í gegnum ICG appið í tengingu við Wattrate tölvuna

  • Mótstaða: Segulbremsa

  • Efni í grind: Stál

  • Stýri: Fjölgrip, húðað með mjúku PVC

  • Stýrisstillingar: Upp/niður, fram/aftur

  • Sætisstillingar: upp/niður, fram/aftur

  • Pedalar: Standard og SPD (Dual sided)

  • Hlífar: Drifbúnaður og rammi eru búnir hlífum sem að verndar frá svita o.s.frv.

  • Hjól á grind: Já, tvö að framan

  • Vatnsbrúsahaldari: Já, á stýri

  • Þyngd, samsett: 51kg

  • Stærð (L x B x H): 132cm X 52cm X 120cm

  • Drifbúnaður: Poly-v belti, segulmótstaða

  • Gírhlutfall drifbúnaðar: 1:10

  • Hámarksþyngd notanda: 150kg

  • Q-Factor: 155mm

  • Sveif: CrMo 172,5mm

Vinsælar viðbætur

Motta undir þrekþjálfa
6.999 kr.

Tengdar vörur

Duke SC40 1.jpg

Duke SC40 Spinning hjól

  • Segulmótstaða
  • |Einfaldur skjár
79.999 kr.
Life Fitness IC3 spinning hjól

Life Fitness IC3 spinning hjól

  • Segulmótstaða
  • |Coach by color
319.999 kr.
ZBike 2.0 þrek/spinning hjól

ZBike 2.0 þrek/spinning hjól

  • Wattamælir
  • |Tengist Zwift o.fl.
249.999 kr.
Life Fitness IC7 spinning hjól

Life Fitness IC7 spinning hjól

  • Hárnákvæm wattamæling
549.999 kr.
Forpöntun
Life Fitness IC6 spinning hjól

Life Fitness IC6 spinning hjól

  • Sérpöntun
  • |Coach by color
449.999 kr.