Vandað 20 mm þykkt gúmmígólfefni fyrir lyftingasvæði og almenn æfingasvæði
Hentar jafnt í heimaræktina sem og á líkamsræktarstöðvar
Þétt yfirborðslag sem er afar auðvelt að þrífa
Sérstakir læsingarpinnar halda mottunum saman og koma í veg fyrir að þær færist í sundur
Læsingarpinnarnir eru faldir undir mottunum og því engar sýnilegar festingar
Hver motta er 100 x 100 cm (1 m²) og læsingarpinnar fylgja með
Harbor EasyClean Pro er vandað 20 mm þykkt gúmmígólfefni sem hentar jafnt í litla heimarækt sem og stóra æfingasali. Motturnar eru hannaðar fyrir fjölbreytta notkun, hvort sem um er að ræða lyftingasvæði, æfingastöðvar eða almenna líkamsrækt.
Það sem gerir EasyClean Pro sérstakt er snjallt læsingarkerfi sem tengir motturnar saman með sérstökum pinnum undir þeim. Læsingarpinnarnir halda mottunum þétt saman og koma í veg fyrir að þær færist í sundur við notkun. Þar sem festingarnar eru faldar undir mottunum fæst snyrtilegt og samfellt yfirbragð án sýnilegra festinga.
EasyClean yfirborðið er afar auðvelt að þrífa og hentar því vel á æfingasvæði þar sem mikið er um umgang og daglega notkun. Motturnar eru 100 x 100 cm að stærð og því einfalt að leggja þær á jafnt lítil sem stór svæði.
Stærð: 100 x 100 cm (1 m²)
Þykkt: 20 mm
Festingar: Læsingarpinnar fylgja með
