Hreysti
Hreysti
Hreysti
568-1717
[email protected]

Verslun

Skeifan 19, 108 Reykjavík

Vöruhús

Sundagarðar 6, 104 Reykjavík

Opnunartími

  • Virka daga: 10–18
  • Laugardaga: 11–15
  • Sunnudaga: Lokað

Vöruhús

  • Virka daga: 9–12 og 13–17

Upplýsingar

  • Skilmálar
  • Greiðsluleiðir

Þjónusta

  • Hafa samband
  • Afhendingarmátar
  • Verkstæði
  • Samsetningarþjónusta

Hreysti

  • Um okkur
  • Hreysti línan
  • Okkar verkefni

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.

© 2026 Hreysti ehf

VisaMastercardAmerican ExpressMaestro
ForsíðaLyftingarekkarGetrxd RX3 Tornado Smith lyftingarekki

Getrxd RX3 Tornado Smith lyftingarekki

Getrxd
  • „All in one“ lyftingarekki frá GetRXD

  • Sameinar smith vél, kaplavél og lyftingarekka í einu tæki

  • 2.0 Tornado armar með innbyggðum hjólum fyrir mýkri stillingar

  • Armarnir eru stillanlegir lárétt og lóðrétt fyrir mikla æfingafjölbreytni

  • Hægt að færa trissuúrtökin frá miðju og út í allt að 81″ / um 206cm breidd

  • 2 x 90kg lóðabunkar

  • 2:1 köplun á hvorum lóðabunka

  • Uppfærð smith vél með betri hreyfiferil

  • Smith stöngin fer aðeins 6,8″ / um 17cm hærra en hlaðin lyftingastöng í lægstu stöðu

  • Sterk 75 x 75mm grind með 26mm götum

  • J-cups fylgja með svo hægt er að nota tækið sem hefðbundinn lyftingarekka

  • Hentar vel í öfluga heimarækt, einkaþjálfunaraðstöðu og minni æfingastöðvar

  • Stærð (HxBxD): 239cm x 123cm x 135cm

699.999 kr.
1

RX3 Tornado Smith Machine Rack frá GetRXD er afar öflug „all in one“ æfingastöð fyrir þá sem vilja sameina smith vél, kaplavél og lyftingarekka í einu tæki. Þetta er tæki fyrir þá sem vilja byggja upp alvöru æfingaaðstöðu án þess að þurfa að kaupa mörg stór tæki sem taka mikið pláss.

Það sem gerir RX3 Tornado sérstaklega fjölhæfan eru Tornado armarnir. Armarnir eru stillanlegir bæði lárétt og lóðrétt, þannig að þú getur sett trissuúrtökin í rétta stöðu eftir æfingu. Þú getur fært armana út til hliðar fyrir flugæfingar, inn að miðju fyrir æfingar eins og axlatog, róður og réttstöðulyftu með köplum, eða upp fyrir niðurtog. Þetta gefur mun meiri möguleika en hefðbundin kaplavél þar sem trissuúrtakið hreyfist aðeins upp og niður.

Þessi útgáfa er með Tornado 2.0 sleðum. Þeir eru með 4 innbyggðum hjólum á hvorum armi, betri nákvæmni í sleðanum og uppfærðu hjóli sem hjálpar til við að halda kaplinum betur í réttri línu. Þetta gerir stillingar mýkri og auðveldari þegar armarnir eru færðir upp og niður eftir uppistöðunum.

Tækið er með tveimur 90kg lóðabunkum og 2:1 köplun á hvorum bunka. Það þýðir að þyngdin í handfanginu er helmingur af þeirri þyngd sem valin er á lóðabunkanum. Þessi köplun gefur mýkri hreyfingu og fínni þyngdarbil, sem hentar mjög vel í kaplaæfingum þar sem góð stjórn skiptir máli.

Smith vélin hefur einnig verið uppfærð frá eldri útgáfum. Í lægstu stöðu fer smith stöngin aðeins 6,8″ / um 17cm hærra en hefðbundin hlaðin lyftingastöng. Það gefur betri hreyfiferil í æfingum eins og réttstöðulyftu, Romanian deadlift og öðrum æfingum þar sem þú vilt byrja neðarlega. Stöngin geymist einnig hátt uppi þegar hún er ekki í notkun, sem gefur meira rými inni í rekkanum.

Grindin er úr sterkum 75 x 75mm prófíl með 26mm götum og 50mm millibili. Götin eru númeruð sem auðveldar stillingar á J-cups, öryggisslám og öðrum aukahlutum. Með tækinu fylgja J-cups, þannig að hægt er að nota fremri uppistöðurnar sem hefðbundinn lyftingarekka fyrir hnébeygju, bekkpressu og aðrar æfingar með frjálsri stöng.

RX3 Tornado Smith Machine Rack er mjög góð lausn fyrir þá sem vilja fá fjölbreytt og sterkbyggt æfingatæki sem getur verið miðpunkturinn í æfingaaðstöðunni. Tækið hentar vel í öfluga heimarækt, bílskúr, einkaþjálfunaraðstöðu og minni æfingastöðvar þar sem mikilvægt er að nýta plássið vel.

Ath. framleiðandi tekur fram að tækið þurfi ekki endilega að vera boltað niður, en mælir með því til að auka öryggi og stöðugleika.

Helstu mál o.fl.

  • Hæð: 94″ / um 239cm

  • Breidd: 48″ / um 122,5cm

  • Breidd með fótplötum: 53″ / um 134,5cm

  • Dýpt: 48″ / um 122,5cm

  • Dýpt með fótplötum: 53″ / um 134,5cm

  • Grind: 75 x 75mm

  • Göt: 26mm

  • Millibil á götum: 50mm

  • Lóðabunkar: 2 x 200lb / um 2 x 90kg

  • Köplun: 2:1 á hvorum lóðabunka

  • Byrjunarþyngd á hvorum lóðabunka: 10lb / um 4,5kg

  • Þyngdarbil: 5lb / um 2,25kg

  • Fjöldi stillinga á Tornado sleða: 29 stöður

  • Millibil á Tornado sleða: 2″ / um 5cm

  • Lárétt stilling á Tornado örmum: 7 stöður / 180°

  • Lóðrétt stilling á Tornado örmum: 7 stöður / 90°

  • Lægsta stilling á Tornado örmum: 4″ / um 10cm frá gólfi

  • Minnsta bil milli Tornado arma: 10″ / um 25cm

  • Mesta bil milli Tornado arma: 81″ / um 206cm

  • Kaplar: Nylon kaplar

  • Trissuhjól: Ál

  • Handföng: Svört álhandföng með gripmynstri

  • Smith stöng: 48lb / um 22kg

  • Þvermál smith stangar: 28mm

  • Hleðslusvæði á smith stöng: 13″ / um 33cm hvorum megin

  • Smith stöng með needle bearings

  • Smith stöng geymist í 6’6″ / um 198cm hæð

  • J-cups fylgja með

  • Upphífistöng fylgir með

Vinsælar viðbætur

Getrxd RX3 Center Post
19.999 kr.
Getrxd RX3 Double Bar Hanger
6.999 kr.
Getrxd RX3 Landmine
9.999 kr.
Getrxd RX3 Lat Pull and Low Row Pad
31.999 kr.
Getrxd RX3 Lat Pulldown Seat
24.999 kr.
Getrxd RX3 Leg Press Plate
29.999 kr.
Getrxd RX3 Plate Sleeve (par)
9.999 kr.
Getrxd RX3 Seal Row Pad
24.999 kr.
Getrxd RX3 Shelf 42" Bjöllur/Handlóð
24.999 kr.
Getrxd RX3 Shelf 42" Plötur/Boltar
16.999 kr.
Getrxd RX3 Spotter Arms (par)
29.999 kr.
Getrxd RX3 Stormlink
8.999 kr.
Samsetning Flókin (aðeins á höfuðborgarsvæðinu)
59.999 kr.

Tengdar vörur

Uppselt
Taurus power rack 1.jpg

Taurus Power lyftingarekki

  • Flottur í heimaræktina
84.999 kr.
Veggfestur RX3 1.png

Getrxd RX3 Tornado veggfestur lyftingarekki

  • 2x 90kg bunkar
  • |Festist á vegg
599.999 kr.
Taurus MS20 Multi Functional Smith

Taurus MS20 Multi Functional Smith

  • 6 Æfingatæki í einu
  • |Án lóðabunka
449.999 kr.
Uppselt
NOHrD Lyftingarekki

NOHrD Lyftingarekki

  • Mismunandi viðartegundir
Frá449.999 kr.
Primal Performance 4-Station Multi-Stack Gym

Primal Performance 4-Station Multi-Stack Gym

  • Sérpöntun
  • |Með lóðabunkum
0 kr.
-20%
Taurus FCM æfingastöð – Rýmingarsala

Taurus FCM æfingastöð – Rýmingarsala

  • Þyngd með lóðaplötum
189.999 kr.151.999 kr.
Forpöntun
IPF bench 1.jpg

Primal Competition Combo Rack

  • Bekkur/Hnébeygjustandur
479.999 kr.
Hreysti X2 lyftingastandar

Hreysti X2 lyftingastandar

  • Tvískiptur lyftingastandur
37.999 kr.
Hreysti Trölla Veggfestur Lyftingarekki

Hreysti Trölla Veggfestur Lyftingarekki

  • Veggfestur lyftingarekki
74.999 kr.
Hreysti Bola Lyftingabúr

Hreysti Bola Lyftingabúr

  • Lyftingabúr
  • |Bola línan
79.999 kr.