Fitness-Mad æfingabolti hentar fyrir jafnvægisæfingar, pilates, jóga og þjálfun kvið- og bakvöðva. Einnig má nota boltann sem sæti til að vinna með jafnvægi og virka setstöðu.
Boltinn er úr slitsterku PVC með öryggiseiginleika sem lætur loftið leka hægt út ef gat kemur á hann. Pumpa fylgir með. Ekki blása boltann upp umfram uppgefið þvermál.
Stærðarviðmið:
• 55 cm: fyrir einstaklinga undir 165 cm á hæð.
• 65 cm: fyrir einstaklinga 165–185 cm á hæð.
• 75 cm: fyrir einstaklinga yfir 185 cm á hæð.