York Barbell Multi Hex lyftingastöng

44.995 kr.

  • Multi hex stöng frá York Barbell
  • Stöngin sjálf er 36kg að þyngd
  • Gripið er 28mm þykkt og stöngin er 220cm löng
  • Standar gera þér auðvelt að hlaða á stöngina
  • Sérstök þynging vegur á móti stöndum svo hún er í jafnvægi
  • Réttstöðulyftur með hex stönginni minnka álag á mjóbak

Ekki til á lager

Láta mig vita þegar vara kemur aftur

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Multi Hex stöngin frá York Barbell er afar vönduð og vel út hugsuð lyftingastöng. Stöngin er með stórt gat í miðju þar sem notandi stendur, þetta veldur því að þyngdarpunkturinn verður meira fyrir miðju sem að minnkar beint álag á neðra bak. Stöngin er búin tveimur handföngum sem þú getur valið á milli.

Stöngin er búin sérstökum “rock & roll” standara sem að lyftir stönginni svo auðvelt er að hlaða á hana lóðum – þegar að lyftunni kemur þá rúllar þú stönginni niður á lóðin. Sérstök þynging er sett á stöngina til þess að vega á móti stönginni og tryggja þannig að stöngin haldist bein í gegnum hverja lyftu.

Á stöngina passa ólympísk lóð enda eru endarnir á stönginni vélskornir eftir sömu málum og aðrar ólympískar stangir frá York. Ath. þessi lyftingastöng er breiðari en hefðbundnar lyftingastangir. Stöngin er 36kg að þyngd, grip er 28mm þykkt og stöngin er 220cm löng.