Taurus Power lyftingarekki

84.995 kr.

  • Öflugur lyftingarekki á hagstæðum verðpunkti
  • Hægt að stilla festingar frá 55 til 190cm (7,5cm hopp)
  • Fjölhæfur og stöðugur rekki
  • Upphífingastöng efst á rekkanum
  • Ýmsir aukahlutir auka notagildi
  • Hægt að festa við gólf
  • Þolir allt að 300kg (150kg á upphífingaslá)
  • Hentar lyftingastöngum sem eru 180-220cm langar

Ekki til á lager

Láta mig vita þegar vara kemur aftur

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Power lyftingarekkinn frá Taurus er frábær rekki sem getur verið miðstykkið í æfingaaðstöðunni. Rekkinn er ansi stöðugur en ef mikið gengur á þá er líka hægt að bolta hann við gólfið. Með rekkanum fylgja öryggisslár sem eru um 20 cm langar. Afar auðvelt er að stilla hæð festinga en 7,5cm bil er á milli gata og spönn gatana er frá 55cm í hæð upp í 190cm.

Ýmsir aukafítusar eru á rekkanum en geymslupláss fyrir stangir/lóð eru á honum ásamt festingum fyrir teygjur. Með teygjufestingunum getur þú bætt við óstöðugri mótstöðu í t.d. Réttstöðulyftuna og tekið þannig nýtt twist á æfinguna. Auðvelt er að koma að lyftingabekk við standinn sem að opnar fyrir fjölda æfinga.

Rekkkinn hentar lyftingastöngum sem eru 180-220cm langar, þolir 300kg (150kg á upphífingastöng) og málin á honum eru: (LxBxH) 168cm x 122,5cm x 225cm.