Stealth Advanced Isotonic orkugel Kassi

3.320 kr.

  • Heimsins háþróaðasta isotonic orkugel
  • Þrískipt kolvetnablanda
  • Náttúruleg bragð og sætuefni gefa frábært bragð
  • Veita líkamanum orku hraðar en gel sem ekki eru isotonic
  • Hægt að nota án þess að þurfa auka vatn
  • Frásogast hratt og er létt í maga
  • Hentar Vegan
  • Stealth Advanced Isotonic orkugel × 14

    Kassi með 14 stykkjum

    Lemon & Lime
    Lemon & Lime
    Tropical
    Tropical
    Forest Fruit
    Forest Fruit
    Watermelon
    Watermelon
    Citrus
    Citrus

Vara uppseld

Láta mig vita þegar vara kemur aftur

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

Stealth Advanced Isotonic orkugelið frá Secret Training var þeirra fyrsta skref inn í næringargeiran. Gelið er hannað af Tim Lawson sem að var fyrstur til þess að búa til Isotonic orkugel í heiminum. Það að gelin séu Isotonic þýðir að líkaminn nær að melta þau án þess að þurfa aukalega vatn.

Orkugelin eru afar auðveld inntöku vegna þess hve þunn þau eru. Oft þegar þykkari gel eru tekin á fullu gasi þá límast þau saman í munninum og gera manni erfitt fyrir að anda. Gelin eru því tilvalin fyrir þá sem eru að stunda íþróttir þar sem engin tími gefst til þess að stoppa.

Hvert gel inniheldur 22g af orkuríkri kolvetnablöndu og af þessum 22g er aðeins 1g sykur. Náttúruleg bragð og sætuefni minnka enn frekar líkur á magavandamálum ásamt því að gefa gott bragð.

Við mælum með því að taka 1-3 gel á hverjum klukkutíma við erfiðar æfingar eða í keppni. Almennt er mikilvægt að passa vatns, steinefna og saltinntöku þegar æfingarálag er mikið. Gelin geymast best í svölu umhverfi, ekki er æskilegt að geyma þau í ísskáp.

Stealth Advanced Isotonic orkugel
Næringargildi 100ml 60ml gel
Orka 611kj / 144kcal 367kj / 86kcal
Prótein 0,1g 0g
Kolvetni 36g 22g
Þar af sykur 1,7g 1g
Fita 0g 0g
Trefjar 0g 0g
Salt 0,02g 0,01g
Innihaldsefni:
Water, Maltodextrin, Sticky Rice Starch, Fructose, Acidity Regulator (Citric Acid, Sodium Citrate), Natural Flavouring, Preservatives (Sodium Benzoate, Potassium Sorbate), Gelling Agent (Gellan Gum), Natural Sweetener (Stevia), Sodium Chloride.