SiS GO Hydro steinefna og salt freyðitöflur

Frá 1.095 kr.

  • Freyðitöflur sem fylla á steinefni og salt birgðir
  • Inniheldur Sodium sem viðheldur vatnsbirgðum líkamans
  • Steinefni og sölt án óþarfa hitaeininga
Lemon
Lemon
Berry
Berry
Pineapple & Mango
Pineapple & Mango
Strawberry Lime
Strawberry Lime
Pink Grapefruit
Pink Grapefruit
Cola (+75mg koffín)
Cola (+75mg koffín)

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

SiS GO Hydro töflurnar

SiS GO Hydro töflurnar eru hannaðar til þess að fylla hratt og örugglega á steinefna og salt birgðir líkamans. Hydro töflurnar eru gospillur sem losna upp í vatni, töflurnar innihalda öll lykil steinefni og sölt án þess að innihalda umfram kaloríur. Það að töflurnar séu kaloríulitlar gerir þér auðvelt fyrir að bæta inn steinefnum og söltum án þess að setja mataræði úr skorðum.

Afhverju á ég að taka Hydro töflurnar?

Við æfingar svitnum við um 1-2 lítra á klukkutíma eftir álagi. Þessi sviti er fullur af steinefnum og söltum sem koma í veg fyrir krampa og tryggja það að vöðvarnir vinni eins og þeir eiga að gera. Þegar það er ekki bætt nógu hratt á þessar vatns, steinefna og salt birgðir þá er hætta á að líkaminn ofþorni.

Ofþornun er ástand sem enginn vill lenda í en þá hækkar líkamshiti, hjartsláttur eykst, kolvetnabirgðir tæmast fyrr og okkur líður eins og æfingin/keppnin sé erfiðari. Í raun og veru þá þarf líkaminn að vinna meira í ofþornunar ástandi til þess að ná sömu afköstum og í venjulegu ástandi.

Við mælum með því að nota Hydro töflurnar svona:

Til þess að hlaða upp fyrir keppni eða æfingu er gott að drekka u.þ.b. 500ml af Hydro 3-4 tímum fyrir og svo 250-500ml um 2 tímum fyrir. Á æfingu eða í keppni er gott að drekka u.þ.b. 500ml af vökva á klukkutíma en þá er hægt að drekka hydro eða kolvetnadrykki/gel.