PhD Diet Whey

Frá 3.195 kr.

Brennsluhvetjandi próteinblanda sem hentar vel eftir æfingar eða yfir daginn sem millimál. Hver skammtur inniheldur aðeins 91 kaloríu og minna en 1,5g af sykri.

Belgian Chocolate
Belgian Chocolate
Strawberry Delight
Strawberry Delight
Vanilla Créme
Vanilla Créme
Salted Caramel
Salted Caramel
Chocolate Peanut
Chocolate Peanut
500g
500g
1kg
1kg
2kg
2kg

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

  • Hágæða, bragðgóð máltíðarblanda
  • Aðeins 91 kaloríur í skammti
  • Minna en 1,5gr af sykri
  • 17gr prótein í skammti
  • inniheldur brennsluhvetjandi efni: CLA, Green tea extract og L-Carnitine

Diet Whey frá PhD

Diet whey blandan er söluhæsta blanda PhD og ein vinsælasta máltíðarblanda í Bretlandi. Blandan inniheldur hátt hlutfall próteina og lítið sykurmagn ásamt brennsluhvetjandi efnum eins og t.d. fitusýrunni CLA. Blandan er fullkomin viðbót við virkan lífsstíl

Blandan er frábær sem millimál en einnig er hægt að fá sér tvöfaldan skammt í staðinn fyrir stóra máltíð. Blandan er þekkt fyrir gott bragð en rúmlega 1.500 manns hafa að meðaltali gefið blöndunni 4,3 stjörnur af 5 mögulegum á Amazon í Bretlandi. Ásamt því að vera frábært millimál hentar Diet Whey einnig vel beint eftir æfingar eða í boost/bakstur. Blandan hentar jafn konum sem körlum og kemur í nokkrum brögðum.

Hvernig er best að blanda Diet Whey?

Best er að blanda Diet Whey í ískalt vatn og hrista vel í hristibrúsa.

  • Einfaldur skammtur: 1 skeið (25gr) í u.þ.b. 200ml af vatni
  • Tvöfaldur skammtur: 2 skeiðar (50gr) í u.þ.b. 400ml af vatni.

Diet Whey inniheldur meðal annars:

Þrískipta próteinblöndu: Próteinblandan í Diet Whey inniheldur mysu, mjólkur og soja prótein. Mysuprótein meltist hratt og hefur mjög gott amínósýru innihald og inniheldur t.d. L-Glutamine sem er ein virkasta amínósýran í recovery ferlinu. Mjólkurprótein hefur einnig gott amínósýru innihald (mikið af BCAA amínósýrum) ásamt því að meltast hægt og gefa líkamanum þannig jafnt flæði próteina. Sojaprótein er á milli mysu og mjólkurpróteins í meltingarhraða en inniheldur virk efni eins og ensím, cysteine o.fl.

Brennsluhvetjandi efni: Diet Whey inniheldur brennsluhvetjandi efni eins og CLA, L-Carnitine og Green Tea Extract. CLA er holl fitusýra sem hefur verið vinsæl í fjölda ára, fitusýran getur hjálpað við niðurskurð fitu. L-Carnitine er notað af líkamanum í orkuframleiðslu en hlutverk þess er að láta líkamann nota meira af fitu við orkumyndun. Green Tea Extract er einnig gríðarlega vinsælt í diet blöndur vegna andoxunaráhrifa og vægra örvunaráhrifa.

Flókna kolvetnablöndu: Kolvetnin úr Diet whey koma aðallega úr byggi og hörfræum og því er afar lítinn sykur að finna í blöndunni. Hörfræ innihalda ekki bara mikið af trefjum heldur einnig hollar fitusýrur