Impact Whey prótein

Frá 5.999 kr.

  • 20g prótein í hverjum skammti
  • Afar lágt hlutfall kolvetna
  • 4,5g BCAA og 3,6g L Glutamine í hverjum skammti
  • Fær afbragðs einkunn hjá LabDoor sem er óháð rannsóknarstofa sem sér um prófanir á bætiefnum
  • Kemur í endurinnsiglanlegum poka með skeið
1kg (40 skammtar)
1kg (40 skammtar)
2,5kg (100 skammtar)
2,5kg (100 skammtar)
5kg (200 skammtar)
5kg (200 skammtar)
Chocolate Smooth
Chocolate Smooth
Salted Caramel
Salted Caramel
Strawberry Cream
Strawberry Cream
Vanilla Creme
Vanilla Creme
Chocolate Caramel
Chocolate Caramel
Chocolate Banana
Chocolate Banana
Chocolate Coconut
Chocolate Coconut
Cookies & Cream
Cookies & Cream
Unflavoured
Unflavoured
Mocha
Mocha

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

Vöðvaþræðir brotna niður (catabolism) og endurbyggjast (anabolism) yfir daginn. Þegar bætt er við æfingum inn í rútínuna þá eykst álagið á vöðva og því eykst niðurbrot vöðva. Til þess að koma á móti þessu niðurbroti er mikilvægt að fá inn prótein reglulega yfir daginn sem hjálpar líkamanum að byggja aftur upp vöðva og flýta þannig fyrir endurheimt.

Impact Whey frá Myprotein er búið til úr hágæða mysu úr mjólk grasbítandi kúa (“Grass-fed”). Hver skammtur af Impact Whey inniheldur 19-21g (eftir bragðtegund) af próteini sem að inniheldur allar helstu amínósýrurnar ásamt heilum 4,5g af keðjuamínósýrum (BCAA) og 3,6g af glútamíni. Blandan er “instantized” sem þýðir að hún blandast afar vel saman við vatn. Blandan inniheldur afar lítið af kolvetnum og fitum og er því frábær fyrir þá sem vilja bæta inn próteini án þess að með fylgi mikið af auka kaloríum. Ef þú ert að leita að mysupróteini sem stenst stranga gæðastaðla ásamt því að vera með afbragðsgóða amínósýrubyggingu og það á góðu verði – þá ertu á réttum stað.

Impact Whey próteinið er auðveld leið til þess að fá inn hágæða prótein sem að hjálpar vöðvum að jafna sig hratt eftir æfingar. Þar sem að afar lítið er af kolvetnum og fitum í blöndunni eru aðeins 103 kaloríur í hverjum skammti (m.v. bragðefnalaust Impact Whey). Blandan hentar virkum einstaklingum sem vilja auka próteininntöku án þess að auka á sama tíma við inntöku annarra næringarefna.

Við mælum með því að blanda einni skeið (25g) af Impact Whey út í ískalt vatn eða mjólk (150-250ml, magn vökva breytir aðeins áferð). Best er að taka próteinið beint eftir æfingar en einnig er hægt að nota það yfir daginn þegar þörf myndast eða í smoothie/bakstur.