Escape Probounder trampólín
36.995 kr.
- Trampólín sem hentar jafnt í heimahús sem og æfingastöðvar
- Öruggt, sterkbyggt og skemmtilegt æfingatæki
- Teygjur í stað gorma sem gerir trampólínið mýkra og hljóðlátara
- Auðvelt er að taka fæturna af
- Trampólínið er 116cm að þvermáli og 31cm hátt
Ekki til á lager
Láta mig vita þegar vara kemur aftur
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI
Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.
- Heimsending með TVG Xpress: 995 kr.
- Sent á pósthús: 795 kr.
- Sækja í verslun: Frítt
Probounder trampólínið frá Escape Fitness er öruggt, sterkbyggt og skemmtilegt æfingatæki. Trampólínið notast við teygjur í stað gorma sem þýðir að það er mýkra, hljóðlátara og öruggara heldur en hefðbundin gormatrampólín. Þar sem að trampólínið er allt að 40% mýkra heldur en gormatrampólínin þá fara æfinga á því mun betur með liðamót.
Probounder trampólínið er nógu létt til þess að auðvelt er að bera það milli herbergja en nógu sterkt til þess að þola gríðarlegt álag (eins og t.d. Í æfingastöð). Teygjurnar eru einnig öruggari en gormarnir en minni hætta er á að notandi slasist ef hann hoppar óvart út fyrir hoppsvæði trampólínsins.
Rammi trampólínsins er öflug stál túba og fæturnir eru gúmmíklæddir svo trampólínið haldi stöðugleika í áköfum æfingum. Trampólínið hentar vel í jafnt heimahús sem og í æfingastöðina.
Stærð: 1160mm X 310mm
Hámarksþyngd notanda: 100kg