Duke T40 Hlaupabretti
129.995 kr.
- Samanbrjótanlegt hlaupabretti sem hannað er fyrir heimahús
- Nær að hámarki 16km/h
- Nær að hámarki 10% halla
- 125x42cm hlaupasvæði
- Einfalt fjöðrunarkerfi
- Mælaborð sýnir lykilupplýsingar
- Fjöldi æfingakerfa
- 1,75hp mótor
- Hámarksþyngd notanda 100kg
- Þetta bretti þarf að smyrja reglulega með sílíkoni, sjá leiðbeiningar í flipa hér fyrir neðan
Ekki til á lager
Láta mig vita þegar vara kemur aftur
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | STÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 6.995 kr.
- Sent á pósthús: 4.995 kr.
- Sækja í verslun: Frítt
Duke T40 hlaupabrettið er hannað til notkunar heima fyrir en 1,75hp mótor fleytir því í 10kg hraða og hallamótor kemur því í allt að 10% halla. T40 brettið er búið einföldu mælaborði með fjölda innbyggðra æfingakerfa. Flýtihnappar fyrir bæði hraða og halla gera þér kleift að gera hraðar breytingar. Hlaupasvæði er ágætlega stórt en hávaxnir hlauparar eru betur settir á stærra hlaupabretti.
Helstu mál o.fl.
- Mótor: 1,75 hestöfl
- Hlaupasvæði: 125x42cm
- Hraði: 1-16km/h
- Halli: 0-10%
- Æfingakerfi: 36
- Flýtihnappar: Hraði (3/6/9kmh) Halli (2/4/8%)
- Púlsmælar: Í handföngum
- Fjöðrunarkerfi: Einfalt fjöðrunarkerfi
- Hámarksþyngd notanda: 100kg
- Stærð í notkun: 149 x 68 x 131cm
- Stærð samanbrotið: 94 x 68 x 131cm
- Þyngd brettis: 48.5kg
- Heildarþyngd í kassa: 57.5kg
- Ábyrgð: 2 ár gegn göllum
Hvernig á að smyrja bretti
Hlaupabretti þurfa reglulegt viðhald til þess að þau renni ljúft og endist vel. Það sem helst þarf að passa er smurningin en ef að bretti ná að þorna þá myndast núningur sem verður til þess að mótorinn erfiðar og á endanum geta ýmsir íhlutir gefið undan. Langflest hlaupabretti sem hönnuð eru fyrir heimahús eru smurð með sílíkoni og það er mjög mikilvægt að smyrja ekki með neinu öðru smurefni ef svo er.
Sílíkon bretti þarf að smyrja á um 150-200km fresti eða 3 mánaða fresti, hvort sem kemur fyrst.
Annað sem þarf svo að passa er þrifnaður en það þarf að ryksuga í kringum brettin reglulega svo að sem minnst ryk safnist fyrir undir mótorhlífinni. Æskilegt er að ryksuga svo undir mótorhlífinni annað slagið en tíðnin fer algerlega eftir aðstæðum (yfirleitt dugar að ryksuga undir hlífinni 1 sinni á ári ef brettið er í heimahúsi).
Hér er myndband sem að sýnir hvernig smyrja á sílíkon hlaupabretti, flest hlaupabretti eru smurð með þessum hætti en athugaðu fyrst í bæklingnum hvort að það sé ekki örugglega sílíkon sem að smyrja á með – ef þú ert í einhverjum vafa getur þú hringt í okkur og fengið upplýsingar:
Hér er myndband sem sýnir hvernig á að ryksuga undir mótorhlífinni: