Cardiostrong BX30 þrekhjól

109.995 kr.

  • Einfalt en öflugt þrekhjól frá Cardiostrong
  • Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
  • Þungt kasthjól (9kg) tryggir jafna mótstöðu
  • Sterk grind – hámarksþyngd notanda 130kg
  • 32 mótstöðustillingar
  • 19 mismunandi æfingakerfi
  • Hægt að stilla hnakk fram/aftur og upp/niður
  • Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir þrekhjól

Á lager

4.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

BX30 þrekhjólið frá Cardiostrong er eitt af þeirra vinsælustu þrekhjólum enda er það á góðum verðpunkti miðað við hversu öflugt það er. Hjólið byggir á segulmótstöðu (líkt og önnur hjól frá Cardiostrong) sem að þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Þungt kasthjól gerir það að verkum að snúningurinn í hjólinu er mjúkur og jafn, sama hversu mikla mótstöðu þú ferð í. Grindin í hjólinu er sterk en hámarksþyngd notanda er 130kg.

Mælaborðið á hjólinu er einfalt og stílhreint en búið öllum lykil æfingamöguleikum. Mælaborðið sýnir hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Og er einnig stjórnborðið fyrir æfingakerfi og mótstöðustillingarnar. Þú getur flakkað á milli 32 mótstöðustillinga og valið á milli 19 mismunandi æfingakerfa, þar af er eitt stillanlegt kerfi og 4 púlsstýrð kerfi.

Þú átt að geta fundið réttu stillingu fyrir þig á hjólinu en sæti er hægt að færa bæði fram/aftur sem og upp/niður. Stýrið er hægt að tylla að þér eða frá með því að losa um festinguna á því. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.

BX30 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja einfalt en öflugt þrekhjól sem hægt er að taka kröftuga æfingu á.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstaða: Segulbremsa
  • Segulbremsa: 10-350 wött
  • Kasthjól: 9kg
  • Gírhlutfall: 1:8,25
  • Lengd sveifu: 17cm
  • Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, wött, snúningshraða, kaloríur, púls (ef þú tengir við púlsmæli)
  • Æfingakerfi: 19 í heild, þar af 1 stillanlegt og 4 púlsstýrð
  • Mótstöðustig: 32
  • Sætisstillingar: Fram/aftur & upp/niður
  • Púlsmælar: Í handföngum
  • Þarf að tengja við rafmagn: Já
  • Hámarksþyngd notanda: 130kg
  • Stærð (LxBxH): 90cm x 57cm x 140cm