Club NT púðinn frá BBE er vandaður gervileður púði sem að þolir mikla notkun. Púðinn er búinn til úr slitsterku gervileðri og allir saumar eru styrktir. Púðinn er fylltur með blöndu af náttúrulegum og synthetískum efnum sem að auka líftíma púðans ásamt því að veita betri höggdempun.
Með púðanum fylgja keðjurnar sem sjást á myndinni – púðinn er um 40kg þungur og það er hægt að opna hann að ofan og þyngja hann ef þarf. Þar sem að púðinn er búinn til úr gervileðri þá er hann vegan-vænn.